Jæja komiði sæl! Lítið hefur drifið á daga mína síðan síðast...
og hef ég lítið að segja nema ég ætla að koma með góða sögu af
Ragga hérna:
Maggi Barðdal: Já Bragi affelgaði feitt í gær!
Ég: Nákvæmlega, beint upp á kantstein, hann keyrði bara á flötu
niður á verkstæði!
Raggi: já ég lenti í þessu um daginn maður!
Ég: nei hvað segiru, og hvað gerðiru?
Raggi: fór bara út og sparkaði því á aftur!
Maggi Barðdal: Ha? Sparkaðiru því á aftur?
Ég: uhh, ertu að tala um hjólkoppa?
Raggi: Ha? já...
Ahhhhhh, alltaf jafn góð saga og ein af mörgum um snillinginn
hann Ragga... Raggi ef þú kommentar ekki við þetta þá verð ég
brjálaður 
Annars er ekkert skemmtilegt að frétta, allir í prófum og
svona!
Góðar stundir...