Jæja, versló búin og
daglega amstrið tekur við, svona rétt fram að næstu helgi, þá
drekkur maður sig smám saman niður, en ekki lengi því það er að
styttast í skólann, busavika, uppskeruhátíð, réttarböll, afmælið
mitt, já og menningarnótt... nóg að gera, og ekki minnkar
drykkjan, úff það liggur við að manni kvíði fyrir
þessu...
En já, fór á Akureyri um
versló, komst að því að Cafe Amor er hommabar, ekki þó bara útaf
nýsjálendingnum sem var að reyna að fá Konna til að sænga með sér,
heldur er það vegna þess að Steini bachelor var dyravörður, nei
anskotinn þá var mér alveg misboðið og rauk út... Sagan segir að
Konna sé illt í rassinum og Biggi hafi verið með eina fertuga í
takinu, en þetta eru aðeins sögusagnir sem ég frétti við
mjólkurpökkunarvélina í mjólkursamlaginu... Á laugardeginum endaði
ég í Sjallanum, ágætt bara fyrir utan hálftíma röð í troðningi sem
minnti á réttir í staðarrétt þegar ég var 5 ára og tróðst
undir...
Ég missti mig svo á
tjaldsvæðinu og fór að kynna mig sem Jón Bjarnason alþingismann,
svo fór Alli að kynna sig strax á eftir líka sem Jón Bjarna,
ótrúlegt, hversu freðinn eða vitlaus þarf maður að vera til að
halda að þetta hafi bara verið ótrúleg tilviljun, ha heitiði báðir
Jón Bjarnason í alvöru? Skelfilegt hvað fólk getur verið heimskt,
eða freðið, en það er eiginlega það sama... Ég fór síðan heim á
sunnudeginum, vinna á mjólkurbílnum á mánudeginum, skelfilegt
alveg, en samt ágætt, missti reyndar af miðpunkti
verlsunarmannahelgarinnar, balli í Árgarði á Steinsstöðum í Lýdó,
mesta snilld sem til er fyrir utan bjór... reyndar ef ég hefði lagt
2 tímum fyrr af stað á mjólkurbílnum þá hefði ég sennilega náð
restinni af ballinu, en stundum er betur heima setið en af stað
farið...
Jæja best að fá sér einn
öl...